Smá færsla


Jæja, þá eru 3 vinnudagar í sveitinni að baki, gengur bara prýðilega vel so far =) Orðinn tvítóna sökum sólarinnar, að komast í form og skemmti mér konunglega =)

Frúin er á leiðinni með pjakkinn með sér og þau ætla að vera hérna um helgina, stelpan var í sveitinni þegar ég kom og fer svo bara með Kristínu og stráknum í bæinn aftur á sunnudaginn.

Í dag er búið að vera nánast logn allan dag og ca 19-24°C hiti, en andlitið datt næstum af mér núna áðan þegar mér var litið á hitamælirinn hérna á pallinum, þar er forsæla, engin vindur og bara sól, lítið á þessa mynd..

(mynd vantar)

No, your eyes are not lying! 45°C skaðræðis hiti! Ég verð dauður eftir sumarið eða ready fyrir hike í gegnum Sahara..!