Nýr þjónn, nýr dagur
Jæja.. Nýji þjónninn er byrjaður að malla sem er ekkert nema gott. Á að vísu eftir að klára ýmislegt varðandi stillingar og að virkja hitt og þetta (er að því núna).. But we’re getting there.
Eina sem er steindautt eins og er, er pósturinn. Það er síðast á listanum hjá mér, þar sem pósturinn hangir á netinu í 48klst áður en það er hætt að reyna að senda hann ;D
Annars er þessi nýji þjónn 64bita, með tvo kjarna, þannig að öll vinnsla ætti að vera leikandi létt fyrir hann =D Þar að auki er þessi nýji þjónn að keyra DEBIAN! Ekkert Gentoo lengur =D Ohh happy happy joy joy!
Á samt eftir að sitja hérna eitthvað frameftir að græja vefi í gang og slíkt. Er bara að bíða eftir einu transferi núna sem ég þarf á að halda, og því er ég að koma með þessa færslu hérna inn ;D