Fyrsti vinnudagurinn búinn


Shit hvað ég hélt að þessi dagur ætlaði aldrei að enda.. Mér er búið að vera svo siiiiiiick heitt í allan dag, svitnandi eins og svín inn í litla búrinu mínu =P

Fékk reyndar góðan félagsskap í dag, Þórunn og Jónatan voru við hjá mér af og til í dag.

Fékk svo ansi skemmtilegt símtal frá Krít í morgun þegar ég mætti í vinnuna, Helga gella er þar og leiddist víst heil ósköp (eða að hún var bara að kasta kveðju á mig). Hún lá í 38°c heitri sólinni og var að baka sig vel á báðum hliðum skildist mér.

Annars leggst þessi vika bara fínt í mig, skrítið að vinna frá 10 um morguninn til 21, en þetta venst fljótt held ég. Nottla frábært starfsfólk hjá Securitas og Hagkaupum þannig að tíminn líður hratt. Var reyndar soldið skrítið að Símon karlinn er fluttur á milli staða, en við hljótum að redda okkur =)

Annars er ég að bæta einingunum við í Scribe á fullu, ætla að rigga fyrir frúnna gestabókina í kvöld (ef ég hef orku!) og svo mótsvaraeininguna (til að admin’a þau fáu comment sem ég fæ hóst). Sjáum hvernig gengur!