Fíflið ég
Var útí 10/11 áðan og beið eftir að það kæmi að mér á kassanum, þá slær afgreiðsludaman eitthvað inn á talnaborðið á kassanum, nema hvað í mínum haus heyrist laglínan við “saltkjöt og baunir” nema hvað það vantaði “túkall” í lokin, þannig að fíflið ég læt í mér heyra “damm damm” í réttum tónum.
Afgreiðslukonan starði á mig og sagði bara: “ha?”; guttinn sem var á undan mér starði einnig en hann kom hinsvegar ekki upp orði, vissi greinilega ekkert hvað hann ætti að segja.. Það tók mig svo ÞRJÁR tilraunir til viðbótar að útskýra djókið.. Guttinn hló ekki, hristi bara hausinn og stakk ekki upp brosi, en þegar afgreiðsludaman loksins fattaði þetta hló hún hátt! =D
Skelfilegur svona “morgunhúmor” wouldn’t you say ?