Bændamarkaðir


Ég elska að kíkja á bændamarkaði, mér finnst þeir eitthvað svo persónulegir og góðir. Andrúmsloftið á staðnum er líka oftast svo gleðilegt og ánægjulegt að það hálfa væri nóg.

Ég smellti mér á bændamarkaðinn á Efra-Seli á Flúðum í dag og leit aðeins á það sem þau voru með í boði, það sem vakti athygli mína og linsunnar hjá mér var meðal annars þetta handgerða sælgæti sem ég sá þarna í hillunni, það er eitthvað svo kósý við svona.

(mynd vantar)