Árangur
Ég verð nú eiginlega að skjóta þessu inn hérna.. Málið er að ég er í átaki, orðin leiður á að vera í þessu „óformi“ sem maður er búin að koma sér í eftir rútuaksturinn og óreglulega matmálstíma. Fór virkilega að nýta mér kortið í Sporthúsinu. Tók líka nammi og nánast allt gos af matseðlinum og ákvað að neita mér um sætt þegar ég vildi það.
So far so good, því það sem af er ári hefur mér tekist að skafa af mér 15kg með þessum breytingum. Ég átta mig á því að þetta er mest megnis vatnsþyngd, en mér er alveg sama, það er breyting =D